25. maí 2006 klukkan 19:35
Komin heim... Köben var æði, Takk fyrir mig Bergþóra og Gummi!
ég er með 4 plástar... 2 á hverri löpp. Það er lekkert! Blöðrótt og fín eftir langa göngutúra úti. Á þessari stundu...þessari mínútu..sekúndu er einhver að ryksuga heima hjá sér. Sú manneskja er dugleg og ég ætti að taka hana til fyrirmyndar!! Kæruleysi og leti tók öll völd á mér úti í köben, ég óverdósaði á svefni þar og á ennþá eftir að fá spark í rassin frá einhverri mjög svo drífandi manneskju svo ég komisti í gang hérna heima. Ég er komin með aukavinnu, byrja á morgun að vinna niðrí óperu... hef tekið við hlutverki carmen í samnefndri sýningu sem verðu sett á laggirnar innan síðar....
eða jafnvel að ég verði sætavísa á litlu hryllingsbúðinni.. Hef ekki ákveðið mig alveg ennþá..
Afhverju er ísland svona grátt þessa dagana? ég lagði inn pöntun fyrir extra mikilli sól í sumar og hressu fólki!!
Ryksugan er farin að horfa of mikið á mig.. frekar krípí...
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
13. maí 2006 klukkan 15:30
Á ég að nenna að blogga... aww.. boring..
Er að fara til köben í dag.. flugið fer 16:10 og ég er ekki ennþá búin að pakka.
Það er líkt mér. Blaaaaaaaaaa...
helling búið að gerasta hjá mér sem ég nenni ekkert að skrifa um, ég er hrædd um að þetta sé alveg dáið blogg.
Takk fyrir samveruna og lifið heil :)
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
03. maí 2006 klukkan 12:48
Ég er hrædd um að eitthvað slæmt hafi gerst fyrir heilastarfsemi mína í nótt...
Vaknaði eiturhress kl 6 í morgun og fór að syngja fullum hálsi með shakiru!!???
aww... Annars er ég hundpirruð þessa dagana og lítið skemmtileg þrátt fyrir magnaða sönghæfileika! Peningáhyggjur gera mig pirraða.
Úff þetta er nú meira rembingsbloggið..´
Þótt þetta sé rembingur þá vil ég komment frá ykkur sem kíkið hingað..
hættið þessum laumupúkaleik! it´s stupit! og dónó sko :)
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
28. apríl 2006 klukkan 16:32
Jæja... 15 dagar þangað til ég hitti hana Bergþóru mína... úff mig hlakkar svo til!
pant fá rosa gott veður!
pant vera komin með fót í lag!
pant vinna í lottó áður en ég fer svo ég geti verslað!
úff gott veður.... við mæðginin erum farin út að rölta og svo saman í vinnuna :) Lokað á Grænuborg og Markús Máni fær að koma með á Lindarborg. Honum hlakkar mikið til!
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
23. apríl 2006 klukkan 22:52
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
22. apríl 2006 klukkan 07:32
Skemmtilegt próf....
Þar sem fyrsti stafurinn í nafni þínu er, Ó
má segja eftirfarandi um þig sem persónu:
Þú ert afar stolt, ákveðin og sættir þig sjaldnast við nei sem svar þegar kemur að ástarmálum. Þú hræðist höfnum meira en flest annað. Þú ert samt sem áður rómantísk, en stundum ertu kanski ástfangnari af ástinni sjálfri en af maka þínum. Hins vegar ertu gefandi og tillitssöm í garð hans og finnst ekkert of gott handa honum. Þú átt erfitt með skapið stundum og hættir til þess að lenda í rökræðum sem þú sérð svo síðan eftir að hafa tekið þátt í.
Oft má satt kyrrt liggja.
Miðað við að uppáhaldslitur þinn sé Svartur,
gætu þetta verið sumir af eiginleikum þínum:
- einfari - dulúð - út af fyrir þig - innsæi - hugulsemi - meðvituð um náunga þinn - einbeitni
Gæti jafnvel verið að það sé bara eitthvað til í þessu... þótt þetta sé eitt af heimskulegu netprófunum???....
Ég er vakandi á óskynsamlegum tíma!
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
20. apríl 2006 klukkan 01:43
Jæja.... Ungfrú Tábrot er spræk! Var að koma af slysó! Djöfull var það hressandi! Byrjaði á því að fara uppá læknavakt þar sem allur fóturinn virtist bara fara stækkandi mínútu frá mínútu í allan dag....svo úr varð að ég skellti mér af stað.
Þar beið ég og beið til þess eins að hlusta á lækninn segja mér að ég ætti að fara strax niðrá slysó, þessi tása leit víst ekki vel út. Svo kom slysó... nágranar,simpsons,fréttir,sígó,auglýsingar...sígó... og svo var kallað Ólöf. Jibbíkóla og mér skellt oná einhver bekk inní einhverri stofu.. svo bíða og bíða og bíða.. svo kom læknir og vildi ólmur fá þessa litlu tásu sem módel í myndatöku. Röntgen kallast það víst. Jæja svo mér var hennt í hjólastól! Í alvöru... ég get nú labbað þótt ég hoppi bara um á annari... Fékk eðal þjónustu í stólnum! Mér var bókstaflega rúllað um allt. Vantaði ekkert nema hjúkku á línuskautum og diskótónlist! Allavega ungfrú tásla er brotin...mölbrotin. Hún er eins og stendur bundin við ungfrú litlutá, litlatá er víst góður félagsskapur. Svo eru þær teipaðar í klessu og svo alskonar sokkum og drasli hent þar yfir.
Nú er ég víst óvinnufær þangað til 30. Apríl... allt út af einu slökkvuliðstæki og sæng...
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
19. apríl 2006 klukkan 14:43
Hversu gaman getur orðið hjá manni!!.... Ligg núna... tjaa eða sit svona hálfpartin uppí rúmi með 2 RISA kodda undir öðrum fætinum, afhverju? jaaaá.. ég er með eindæmum klár manneskja og tókst að tábrjóta mig fyrir sirka 1 og hálfum tíma síðan! Ætlaði bara að skella mér í vinnuna og harka þetta af mér en eftir að hafa tekið nokkur spor og farið að svima og orðið flögurt af verkjum þá sá ég að það gæti aldrei gengið. Hringdi uppá slysó þar sem ég var nokkuð viss um að það skipti engu máli hvort ég færi þangað eða ekki, hvað í annskotanum yrði svosum gert við tábroti!? Það reyndist vera rétt hjá mér og sagði hún mér bara að taka helling af íbúfen og liggja með helling af drasli undir fætinum og ekki farí skó. Mjög líklegt nefninlega að ég kæmi blessuðum fætinum ofaní nokkurn skapaðan hlut eins og hann er á sig kominn! Stokkbólgin og það ekki bara á tánni þótt hún sé verst. Hún er svona þreföld.. og já bara mun ljótari en hún hefur nokkru sinni verið!
Ég sem ætlaði í suuuuuunnnnd :( Þetta er samt of heimskulegt.. þetta er bara fyndið.
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
14. apríl 2006 klukkan 14:49
Tillúkku!!!
Tillúkku, tillúkku, tillúkku við tær,
tilúkku, tilúkku, tilúkku frá mær,
-nú ert tú eitt ár,
størri enn í gjár,
tilúkku, tilúkku, tilúkku frá mær.
Nú ynskja vit øll at tær væl ganga skal,
so eta vit køku og spæla eitt spæl,
-tí tú ert eitt ár,
størri en í gjár,
tillúkku, tillúkku, tillúkku frá mær.
trallallalla lallalla lallallalaaa
trallallalla lallalla lallallalaaa
trallallalla laaaaa
trallallalla laaaaa
trallallalla lallalla lallallallaaa
Tá klokkan er hundrað so fara vit heim,
tá hava vit havt bæði gleði og gleim,
-tí tú ert eitt ár
størri en í gjár
tillúkku, tillúkku, tillúkku frá mær
-nú ert tú eitt ár,
størri en í gjár,
tilúkku tilúkku tilúkku frá mær.
Nú þarf ég bara að læra að syngja þetta... komin með textann! Einhver sem kann? :)
Ólöf Ţóra Sverrisdótir
13. apríl 2006 klukkan 20:49
ahh...þú ert góður latte! Mér líkar þú! akkurat rétt hitaður! hver bjó þig til!? þú ert yndislegur!
Hver er að skrá sig inná msnið mitt?!!! Bara spyr... þér er velkomið að nota það ef þig langar.. Ég á pottþétt skemmtilegri vini en þú.
Ólöf Ţóra Sverrisdótir